 Hvað telur hann?
Hvað telur hann?
 Fyrst nokkur hugtök.
 
Rafspenna
Spennu er líkt sem þrýstingi sem getur knúið rafstraum eftir leiðara. Mælieining er Volt, V.
Rafstraumur
Straumur er rafeindastreymi í leiðara.
 Mælieining er Amper, A.
Afl
Afl er spenna x straumur.
 Mælieining er Watt, W.
Orka
Orka er aflið x tíminn sem notar það.
 Mælieining er Wattstund, Wh.
Mælieining, kWh
1000 W er jafnt og 1 kW.
 1 kW notað í 1 klukkustund er jafnt og 1 kWh.
Rafmagnsmælirinn hjá þér telur kWh.
