Hleðslustöðvar

 

Hleðslustöð Fallorku við Ráðhúsið á Akureyri

 

Fallorka á og rekur eina 2x22 kW hleðslustöð við Ráðhúsið á Akureyri.

Í samstarfi við Vistorku er stefnt að opnun þriggja nýrra 2x22 kW stöðva núna í sumar 2021. Stöðvarnar verða við Sundlaug Akureyrar, Amtsbókasafnið á Akureyri ásamt því að önnur hleðslustöð verður sett upp við ráðhúsið.

Stöðvarnar eru frá Ísorku og eru rafbílaeigendur hvattir til að sækja app Ísorku til að nýta sér stöðvarnar, þó einnig sé hægt að greiða beint með greiðslukorti við stöðvarnar.

 

 

Svæði

Skrifstofa fallorku

Opið alla virka daga frá 8-16

Lokað um helgar.