Ný virkjun í Glerá

Fallorka gangsetti nýja 3,3 MW vatnsaflsvirkjun í Glerá ofan Akureyrar í október 2018. Stöðvarhús virkjunarinnar er í Réttarhvammi við Hlíðarfjallsveg en stífla sex kílólmetrum ofar á Glerárdal. 

Raforka frá virkjuninni streymir beint inn á dreifikerfi Norðurorku á Akureyri. Framboð á raforku á Akureyri hefur því aukist með tilkomu virkjunarinnar en jafnframt hefur staðan batnað á Eyjafjarðarsvæðinu í heild, þar sem háspennulínur Landsnets inn á svæðið eru fullnýttar og öll viðbótar-orkuframleiðsla á svæðinu léttir á kerfinu.

Virkjunin er tæknilega mjög vel útbúin og getur framleitt rafmagn þótt allar háspennulínur til Eyjafjarðar detti út, eins og gerðist til dæmis í miklu óveðri í september 2012.

Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti í september 2013 að virkjunin yrði reist, og studdu allir flokkar í bæjarstjórn málið. Samningur Fallorku og Akureyrarbæjar kveður á um að Fallorka geri göngustíg frá stöðvarhúsi og alla leið upp að stíflunni. Þar verður enn fremur gerð ný göngubrú yfir Glerá og opnast þannig áhugaverð hringleið fyrir útivistarfólk.

Raforkuframleiðsla nýju virkjunarinnar og virkjana Fallorku í Djúpadal samsvarar u.þ.b. notkun allra heimila á Eyjafjarðarsvæðinu.

Skýrsla Verkfræðistofu Norðurlands og Eflu
Kort af Glerá og virkjunarkostum
Skýrsla Dr. Arnórs Þ. Sigfússonar um fugla á Glerárdal
Skýrsla Dr. Tuma Tómassonar um fiska í Glerá

Svæði

Skrifstofa fallorku

Opið alla virka daga frá 8-16

Lokað um helgar.