Fréttir

Fjórar nýjar hleðslustöðvar fyrir rafbíla

Fallorka opnaði nýlega fjórar 2x22 kW hleðslustöðvar á Akureyri. Stöðvarnar eru þær fyrstu sem Fallorka opnar með greiðslulausn Ísorku. Til að nota stöðvarnar þarf annaðhvort að greiða með appi Ísorku í snjallsíma eða greiðslulykli þeirra. Hér eru nánari upplýsingar um appið. 

Verkefnið er hluti af styrkúthlutun Orkusjóðs og er samstarfsverkefni Fallorku, Vistorku, Norðurorku og Akureyrarbæjar. Rafeyri sá um uppsetningu og tengingar á stöðvunum. Fallorka rekur nú alls fjórar stöðvar á þremur stöðum á Akureyri og geta átta bílar hlaðið á sama tíma. Tvær stöðvar eru við Ráðhúsið, ein við Sundlaug Akureyrar og ein við Amtsbókasafnið. Stöðvarnar verða merktar á næstu dögum samkvæmt nýju ákvæði í umferðarlögum um sérmerkt stæði fyrir rafbíla. 

Fallorka hefur í hyggju að reisa fleiri stöðvar á starfssvæði sínu enda hefur mikil aukning verið á fjölda rafbíla á Íslandi undanfarin misseri.  Hér má nálgast upplýsingar um hleðslustöðvar á Akureyri.

Fallorka býður 50% kynningarafslátt á stöðvunum í september.


Svæði

Skrifstofa fallorku

Opið alla virka daga frá 8-16

Lokað um helgar.